Enchiladas með sveppum
- 15 Mins
- 10 Mins
- 8 Ingredients
- Medium
Smakkaðu ljúffenga grænmetis-enchilada með bragðgóðum sveppum, svissuðum lauk og blöðrukáli. Fyllingin er mjúk en tortillan stökk og saman dansa þau flottan tangó. Gott er að setja smá klípu af sýrðum rjóma ofan á dásemdina í lokin.
What to shop
Serves {0} portions
500 g Sveppir |
1 pc laukur |
300 g blöðrukálshöfuð |
2 tbsp Olía |
1 satchet Santa Maria Fajita Spice Mix Original |
1 jar Santa Maria Chunky Salsa Medium 230 g |
3 dl Rifinn ostur |
8 packets Santa Maria Tortilla Corn & Wheat Medium 8-pack |
How to prepare
- Hitið ofninn í 200°C.
- Skerið sveppina í sneiðar. Saxið laukinn og rífið kálið í bita.
- Steikið sveppina, laukinn og kálið í olíu á pönnu.
- Blandið saman salsa (úr krukku), Enchilada Spice Mix-kryddblöndu og helmingnum af ostinum.
- Hellið helmingnum af sósunni yfir grænmetið og látið krauma í 2-3 mínútur.
- Skiptið grænmetisfyllingunni á tortillurnar, rúllið þeim upp og setjið í smurt, ofnfast mót. Látið samskeytin snúa niður.
- Hellið afgangnum af sósunni yfir tortillurnar og sáldrið restinni af ostinum yfir.
- Bakið Enchilada-rúllurnar í u.þ.b. 10 mínútur. Berið fram með köldum, sýrðum rjóma.