Tortillapizza með reyktri skinku og jalapeño
- 10 Mins
- 5 Mins
- 9 Ingredients
- Medium
Með þessari uppskrift býrðu til bestu pizzuna í hverfinu á korteri! Skelltu pizzasósu á tilbúna tortillubotna, leggðu sneiðar af reyktri skinku yfir og kryddaðu með bragðmikilli taco-sósu og sterkum jalapeño-pipar.
What to shop
Serves {0} portions
Tortillapizza með reyktri skinku |
---|
1 pk Santa Maria Pizza Tortilla |
1.5 dl Santa Maria Pizza Sauce Grilled Paprika |
3.5 dl rifinn ostur |
100 g reykt skinka |
16 stk Santa Maria Green Jalapeño |
4 msk Santa Maria Taco Sauce Hot 800 g |
Borið fram með |
---|
Santa Maria Pizza Topping |
Santa Maria Pizza Spices |
klettasalat |
How to prepare
- Hitið ofninn í 250°C.
- Skerið skinkuna í strimla.
- Setjið u.þ.b. 2 msk af pizzasósu á hverja tortillu og rifinn ost yfir. Skiptið skinkustrimlunum niður á tortillurnar, sáldrið jalapeño-piparbitum yfir og loks skvettu af taco-sósu yfir hverja köku.
- Setjið pizzurnar á ofnplötu og bakið í 5-8 minútur, eða þar til osturinn er bráðnaður og pizzurnar hafa tekið á sig fallegan lit.
- Gott er að setja svolitla pizzasósu yfir í restina, krydda með pizzakryddi og setja loks svolítið af fersku klettasalati á hverja pizzu.
- Bragðgóð máltíð er tilbúin!