Tortilla-flögur með kanilbragði ásamti ídýfu með hlynsíróps- og pecanhnetubragði.
- 10 Mins
- 10 Mins
- 7 Ingredients
- Mild
Volgar og sætar kanil-tortillaflögur sem dýft er í þykka, rjómakennda ídýfu með bæði hnetu- og hlynsírópsbragði. Þetta er dásamleg blanda - láttu það eftir þér að smakka! Þessi tvenna er skotheld í partýið líka!
What to shop
Serves {0} portions
Tortilla-flögur með kanil, hnetum og sírópi |
---|
100 g Strásykur |
2 msk Malaður kanill |
4 Santa Maria Plain Flour Soft Tortillas - master |
250 g Mascarpone ostur |
1 msk Hlynsíróp |
25 g Pecan-hnetur, ristaðar og saxaðar |
Olía til steikingar |
How to prepare
- Blandið saman kanil og sykri og sáldrið yfir stóran disk eða fat.
- Hitið olíuna og snökksteikið tortilla-flögurnar þar til þær hafa tekið fallegan lit.
- Takið flögurnar upp úr olíunni með fiskispaða og leggið á kanilsykurinn.
- Hristið vel saman á meðan flögurnar heitar.
- Kælið.
- Hrærið vel saman mascarpone-ost, hlynsíróp og muldar pecan-hnetur. Setið í fallega skál í miðjuna á stórum diski eða fati, raðið kanil-tortillaflögunum í kring - og þá er ekkert annað eftir en að prófa þessa nýjung!