Bombay-vefjur með rifnum laxi
- 20 Mins
- 8 Ingredients
- Medium
Einstaklega fersk vefja með indverskum keim. Engifer, chili, súrsætt sítrónumauk og jógúrtsósa ásamt mögulega bragðesta laxi sem þú hefur smakkað. Vefðu þessu inn í indverska hveitiköku, bíttu í og njóttu! Namaste!
What to shop
Serves {0} portions
500 g laxaflök (eða 4 laxabitar), roðlaus |
1 poki Santa Maria Ginger & Chili Spices |
1 msk smjör |
0.5 dl vatn |
1 pakki Santa Maria Chapati Bread |
1 poki ferskt spínat |
1 krukka Santa Maria Lemon Chutney |
1 dl hrein jógúrt |
How to prepare
Svona gerum við:
- Hitaðu ofninn í 200 °C
- Settu laxinn í steikarpokann sem fylgir með, helltu kryddblöndunni saman við ásamt smjöri og vatni. Lokaðu pokanum með festingunni sem fylgir.
- Leggðu steikarpokann í kalt fat og klipptu ca. ½ cm af einu horni pokans. Passaðu að steikarpokinn snerti hvergi hliðar ofnsins; athugaðu að pokinn þenst út á meðan á steikingu stendur. Bakað í miðjum ofni í 20 mínútur.
- Taktu laxinn út og klipptu stórt gat efst á pokann (Varúð: þetta er mjög heitt!). Tæmdu úr pokanum í skál og tættu laxastykkin gróflega með tveimur göfflum.
- Hitaðu chapati-brauðið (á pönnu eða í örbylgjuofni) og stráðu spínatinu yfir, bættu svo við sítrónumaukinu og jógúrtsósunni. Leggðu loks skammt af tætta laxinum ofan á, rúllaðu kökunni upp svo úr verði vefja.