Pizza með grænmeti, fetaosti og ólívum
- 20 Mins
- 12 Ingredients
- Medium
Fljótleg og góð grænmetispizza sem einfalt er að útbúa með pizza-tortillunum okkar. Við mælum með því að nota sem álegg blöndu af úrvals grænmeti, mjúkan fetaost og ólívur. Við bakstur breytist tortillan í hinn besta pizzabotn, bæði þunnan og stökkan.
What to shop
Serves {0} portions
Pizza með grænmeti |
---|
4 stk Santa Maria Pizza Tortilla |
1.5 dl Santa Maria Pizza Sauce |
0.5 stk Zucchini (kúrbítur) |
1 stk Rauð paprika |
1 stk Gul paprika |
1.5 stk Rauðlaukur |
2 stk Hvítlauksgeirar |
0.5 tsk Santa Maria Chili Explosion |
140 g Fetaostur |
2.5 dl Rifinn ostur |
Meðlæti |
---|
2 dl góðar ólívur |
0.5 búnt fersk basilika |
How to prepare
- Hitið ofninn í 250°C.
- Saxið hvítlaukinn og skerið kúrbítinn (zucchini) í strimla, sem og paprikuna og laukinn.
- Steikið á pönnu þar til grænmetið tekur á sig svolítinn lit. Kryddið með t.d. Chili Explosion og salti.
- Smyrjið pizzasósu yfir tortillurnar, leggið grænmetið á botnana og sáldrið fetaosti í kubbum yfir. Loks er gott að setja rifinn ost yfir allt. Bakið pizzurnar í 5-8 mínútur eða þar til þær hafa tekið fallegan lit.
- Dreifið ólívum og ferskri basilíku yfir bakaðar pizzurnar og berið strax fram.